Sjómannadagur á Akureyri - ,,Einn á báti" á Hömrum - styrkbeiðni

Málsnúmer 2013040176

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 142. fundur - 23.05.2013

Styrkbeiðni dags. 22. apríl 2013 frá Árna Rúnari Jóhannessyni f.h. hátíðarinnar "Einn á báti" sem er hluti hátíðarhaldanna í tilefni af Sjómannadeginum á Akureyri. Óskað er eftir framlagi að upphæð kr. 250.000.

Akureyrarbær styður nú þegar við hátíðarhöldin vegna Sjómannadagsins með 300.000 kr. fjárframlagi auk þess sem starfsfólk Akureyrarstofu leggur til umtalsverða vinnu vegna þeirra. Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við ósk um aukinn stuðning við hátíðarhöldin að þessu sinni.