ÍBA f.h. Akurs vegna parketgólfs í íþróttahús Naustaskóla fyrir dansdeild félagsins

Málsnúmer 2013030129

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 128. fundur - 21.03.2013

Erindi dags. 12. mars 2013 frá Íþróttabandalagi Akureyrar f.h. Íþróttafélagsins Akurs sem vill árétta að lagt verði parketgólf í íþróttahús Naustaskóla fyrir æfingaraðstöðu dansdeildar félagsins.

Íþróttaráð vísar erindinu til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 224. fundur - 03.05.2013

4. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 21. mars 2013:
Erindi dags. 12. mars 2013 frá Íþróttabandalagi Akureyrar f.h. Íþróttafélagsins Akurs sem vill árétta að lagt verði parketgólf í íþróttahús Naustaskóla fyrir æfingaaðstöðu dansdeildar félagsins.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar móttekur erindið og vísar því til verkefnisliðs Naustaskóla.