Naustahverfi, svæði norðan Tjarnarhóls, deiliskipulagsbreyting, nýtt íbúðarsvæði

Málsnúmer 2013030067

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 155. fundur - 10.04.2013

Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðis norðan Tjarnarhóls við Kjarnagötu, dagsetta 10. apríl 2013 og unna af Ómari Ívarssyni frá Landslagi ehf.
Óskað var eftir tillögu nafnanefndar um heiti á nýrri götu og leggur nefndin til að gatan fái heitið Jaðarstún. Nefndin bendir á að Jaðar var heiti á býli í nágrenninu og fellur nafnið einnig vel inní stafrófsröð gatna í hverfinu.

Skipulagsnefnd samþykkir tilllögu nafnanefndar.

Deiliskipulagstillagan lögð fram en afgreiðslu frestað.

Andrea S. Hjálmsdóttir sat hjá við afgreiðsluna.

Skipulagsnefnd - 156. fundur - 24.04.2013

Sigurður Guðmundsson kom aftur á fundinn kl. 8:50
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðis norðan Tjarnarhóls við Kjarnagötu, dagsetta 24. apríl 2013 og unna af Ómari Ívarssyni hjá Landslagi ehf.

Meirihluti skipulagsnefndar leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samhliða verði auglýst tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna íbúðarsvæðis vestan Kjarnagötu (sjá málsnr. 2013030090).

Edward H. Huijbens V-lista og Sigurður Guðmundsson A-lista vísa í bókun sína við 2. lið fundargerðarinnar.

Sigurður Guðmundsson A-lista greiðir atkvæði gegn tillögunni og Edward H. Huijbens V-lista situr hjá.

Bæjarstjórn - 3339. fundur - 07.05.2013

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 24. apríl 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðis norðan Tjarnarhóls við Kjarnagötu, dags. 24. apríl 2013 og unna af Ómari Ívarssyni hjá Landslagi ehf.
Meirihluti skipulagsnefndar leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samhliða verði auglýst tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna íbúðarsvæðis vestan Kjarnagötu (sjá málsnr. 2013030090).
Edward H. Huijbens V-lista og Sigurður Guðmundsson A-lista vísa í bókun sína við 2. lið fundargerðarinnar.
Sigurður Guðmundsson A-lista greiðir atkvæði gegn tillögunni og Edward H. Huijbens V-lista situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu meirihluta skipulagsnefndar með 6 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista, Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista, Ólafur Jónsson D-lista og Ragnar Sverrisson S-lista sátu hjá við afgreiðslu.

Skipulagsnefnd - 162. fundur - 14.08.2013

Deiliskipulagsbreytingin var auglýst frá 12. júní 2013 með athugasemdarfresti til 24. júlí 2013 í Lögbirtingablaðinu, Dagskránni og Fréttablaðinu. Gögnin voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, í þjónustuanddyri og hjá Skipulagsstofnun. Samhliða deiliskipulagsbreytingunni var auglýst aðalskipulagsbreyting "Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018, íbúðarsvæði vestan Kjarnagötu".

Tvær umsagnir bárust frá:
1) Norðurorku, dagsett 5. mars 2013. Bent er á að hugsanlega gæti komið til aukakostnaðar vegna fjarlægða frá tengingum við stofnlagnir sem muni lenda á byggingaraðilum. Einnig er bent á að á fyrirhuguðu byggingarsvæði eru lagnir sem hugsanlega þurfi að færa og mun sá kostnaður falla á þann er óskar breytinga. Óskað er eftir að sett verði kvöð á svæði núverandi lagna við Kjarnagötu.
2) Minjastofnun Íslands, dagsett 7. mars 2013 sem gerir engar athugasemdir við deiliskipulagstillöguna.

Athugasemdir bárust frá:
1) Íbúum við Ásatún 6-8, dagsett 18. apríl 2013 ásamt nafnalista með 29 nöfnum.
2) Hamratúni 4-6 húsfélagi, dagsett 24. júlí 2013.
3) Reykjaprenti ehf., dagsett 24. júlí 2013.
4) Kanon arkitektum, dagsett 8. júlí 2013.

Útdráttur úr innsendum bréfum kemur fram í meðfylgjandi skjali merktu "DSK breyting - athugasemdir og svör dags. 14.8.2013".

Svör við athugasemdum eru í skjali merktu "DSK breyting - athugasemdir og svör dags. 14.8.2013". Tekið er tillit til e. liðar athugasemdar nr. 4.

Meirihluti skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Andrea S. Hjálmsdóttir V-lista ítrekar fyrri bókanir og greiðir atkvæði á móti tillögunni.

Bæjarráð - 3377. fundur - 22.08.2013

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 14. ágúst 2013:
Deiliskipulagsbreytingin var auglýst frá 12. júní 2013 með athugasemdarfresti til 24. júlí 2013 í Lögbirtingablaðinu, Dagskránni og Fréttablaðinu. Gögnin voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, í þjónustuanddyri og hjá Skipulagsstofnun. Samhliða deiliskipulagsbreytingunni var auglýst aðalskipulagsbreyting "Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018, íbúðarsvæði vestan Kjarnagötu".

Tvær umsagnir bárust frá:
1) Norðurorku, dags. 5. mars 2013. Bent er á að hugsanlega gæti komið til aukakostnaðar vegna fjarlægða frá tengingum við stofnlagnir sem muni lenda á byggingaraðilum. Einnig er bent á að á fyrirhuguðu byggingarsvæði eru lagnir sem hugsanlega þurfi að færa og mun sá kostnaður falla á þann er óskar breytinga. Óskað er eftir að sett verði kvöð á svæði núverandi lagna við Kjarnagötu.
2) Minjastofnun Íslands, dags. 7. mars 2013 sem gerir engar athugasemdir við deiliskipulagstillöguna.

Athugasemdir bárust frá:
1) Íbúum við Ásatún 6-8, dags. 18. apríl 2013 ásamt nafnalista með 29 nöfnum.
2) Hamratúni 4-6 húsfélagi, dags. 24. júlí 2013.
3) Reykjaprenti ehf., dags. 24. júlí 2013.
4) Kanon arkitektum, dags. 8. júlí 2013.

Útdráttur úr innsendum bréfum kemur fram í meðfylgjandi skjali merktu "DSK breyting - athugasemdir og svör dags. 14.8.2013".
Svör við athugasemdum eru í skjali merktu "DSK breyting - athugasemdir og svör dags. 14.8.2013". Tekið er tillit til e. liðar athugasemdar nr. 4.
Meirihluti skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.
Andrea S. Hjálmsdóttir V-lista ítrekar fyrri bókanir og greiðir atkvæði á móti tillögunni.

Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 7. lið fundargerðar bæjarstjórnar 4. júní 2013.

Bæjarráð samþykkir tillögu meirihluta skipulagsnefndar með 3 atkvæðum gegn atkvæðum Andreu Sigrúnar Hjálmarsdóttur V-lista og Önnu Hildar Guðmundsdóttur A-lista.