Kvikmyndaklúbbur Akureyrar - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2013

Málsnúmer 2013020170

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 139. fundur - 14.03.2013

Umsókn dags. 15. febrúar 2013 frá Sóleyju Björk Stefánsdóttur þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr. 135.000 til þess að geta haldið áfram uppbyggingu fjölbreytilegs menningarlífs á sviði kvikmyndasýninga.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 135.000 til verkefnisins.