Íþróttafélagið Þór - kaup Akureyrarbæjar á gámum fyrir sjónvarpsaðstöðu á Þórsvelli

Málsnúmer 2012120017

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 122. fundur - 06.12.2012

Erindi dags. 27. nóvember 2012 frá Íþróttafélaginu Þór þar sem óskað er eftir því að Akureyrarbær kaupi gáma af félaginu sem notaðir eru fyrir sjónvarpsupptökur á Þórsvelli.
Árni Óðinsson S-lista vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.
Eiður Arnar Pálmason framkvæmdastjóri Þórs sat fundinn undir umræðum þessa liðar, en vék af fundi áður en til afgreiðslu kom.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.