Lækjargata 22b - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012100095

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 417. fundur - 17.10.2012

Erindi dagsett 12. október 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Sigfríðar Maríu Larsen sækir um breytingar á húsnæði og lóðarveggjum á lóð nr. 22b við Lækjargötu. Meðfylgjandi eru teikningar.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 419. fundur - 31.10.2012

Erindi dagsett 12. október 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Sigfríðar Maríu Egilsdóttur sækir um breytingar á húsnæði nr. 22b við Lækjargötu og heimild til að reisa nýja lóðarveggi. Meðfylgjandi eru teikningar. Innkomnar nýjar teikningar 29. október 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.