Strætisvagnar - hlutverk

Málsnúmer 2012090074

Vakta málsnúmer

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 1. fundur - 10.09.2012

Samstarfsnefndin beinir þeirri beiðni til framkvæmdaráðs að allir vagnar Strætisvagna Akureyrar verði útbúnir þannig að þeir verði aðgengilegir öllum og upplýsingar um aðgengi að vögnunum inni á heimasíðu sveitarfélagsins verði jafnframt uppfærðar.

Framkvæmdaráð - 257. fundur - 21.09.2012

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra beinir þeirri beiðni á fundi sínum þann 10. september sl. til framkvæmdaráðs að allir vagnar Strætisvagna Akureyrar verði útbúnir þannig að þeir verði aðgengilegir öllum og upplýsingar um aðgengi að vögnunum inni á heimasíðu sveitarfélagsins verði jafnframt uppfærðar.

Framkvæmdaráð felur bæjartæknifræðingi Helga Má Pálssyni að vinna áfram að málinu.

Framkvæmdaráð fór og skoðaði nýja ferliþjónustubílinn.