Gata mánans 4 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2012090019

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 412. fundur - 05.09.2012

Erindi dagsett 4. september 2012 þar sem Árni Árnason f.h. Eimskipa Íslands ehf., kt. 421104-3520, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 4 við Götu mánans. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 416. fundur - 10.10.2012

Erindi dagsett 4. september 2012 þar sem Árni Árnason f.h. Eimskipa Íslands ehf., kt. 421104-3520, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 4 við Götu mánans. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Ágúst Hafsteinsson. Innkomnar nýjar teikningar ásamt umsókn um undanþágu 10. október 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 422. fundur - 21.11.2012

Erindi dagsett 13. nóvember 2012 þar sem Árni Árnason f.h. Eimskipa Ísland ehf., kt. 421104-3520, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús nr. 4 við Götu mánans. Óskað er eftir leyfi til að bæta við rými undir húsinu ætlað sem áhaldageymsla. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.