Skipagata 5 - fyrirspurn um leyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2012080039

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 409. fundur - 15.08.2012

Erindi dagsett 10. ágúst 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Aus ehf., kt. 530706-2060, óskar eftir umsögn byggingarfulltrúa um viðbyggingu við 1. hæð og tvær hæðir ofan á húsið að Skipagötu 5 og undanþágur frá byggingarreglugerð skv. gr. 17.1.2. Meðfylgjandi eru nánari skýringar í bréfi og tillöguteikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið.