Hrísalundur 10 - fyrirspurn um glerþak yfir svalir

Málsnúmer 2012080034

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 409. fundur - 15.08.2012

Erindi dagsett 7. ágúst 2012 þar sem Stefán Guðnason spyrst fyrir um hvort hann fengi leyfi til að setja glerþak yfir svalir íbúðar sinnar á fjórðu hæð að Hrísalundi 10 til að forðast leka. Meðfylgjandi er útlitsteikning.

Skipulagsstjóri tekur neikvætt í erindið þar sem útlit hússins mun breytast umtalsvert. Til greina kæmi að samþykkja heildstæða lausn fyrir allt húsið sem tekur á vandamálinu. Minni á að samþykki húsfélags þarf einnig að liggja fyrir vegna framkvæmda af þessum toga.