Ráðhústorg 3 - umsókn um að breyta 2. hæð í íbúð og gistiskála

Málsnúmer 2012070108

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 408. fundur - 01.08.2012

Erindi dagsett 23. júlí 2012 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Áveitunnar ehf., kt. 560198-2219, sækir um að breyta skrifstofuhúsnæði á 2. hæð að Ráðhústorgi 3 í íbúð er snýr í suður og gistiskála er snýr í norður. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S Árnason.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 437. fundur - 20.03.2013

Erindi dagsett 23. júlí 2012 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Áveitunnar ehf., kt. 560198-2219, sækir um að breyta skrifstofuhúsnæði á 2. hæð að Ráðhústorgi 3 í íbúð í suðurhluta og gistiskála í norðurhluta. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Innkomnar teikningar 7. nóvember 2012 og samþykki meðeigenda 19. mars 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.