Hafnasamlag Norðurlands - bílastæði fyrir bílaleigubíla - Strandgata austan Hjalteyrargötu

Málsnúmer 2012060071

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 253. fundur - 08.06.2012

Lagt fram erindi dags. 5. júní 2012, frá hafnarstjóra f.h. Hafnasamlags Norðurlands bs, þar sem óskað er eftir að leigja 10 bílastæði við Strandgötu. Um tímabundna leigu er að ræða.

Framkvæmdaráð samþykkir erindið og felur bæjartæknifræðingi að ganga frá leigusamningi.