Norðurgata 48 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2012050189

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 398. fundur - 23.05.2012

Erindi dagsett 23. maí 2012 þar sem Stefán Steingrímsson og Gunnar L. Eiríksson sækja um að gera bílastæði fyrir tvo bíla framan við húsið að Norðurgötu 48. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu þar sem umsækjendur þurfa að vera þinglýstir eigendur eignarinnar.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 399. fundur - 30.05.2012

Erindi dagsett 23. maí 2012 þar sem Stefán Steingrímsson og Malee Vita sækja um að gera bílastæði fyrir tvo bíla framan við húsið að Norðurgötu 48. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri samþykkir 6 metra breitt bílastæði. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.