Hamrar, útilífs- og umhverfismiðstöð skáta - styrkbeiðni vegna útilífsskóla 2012

Málsnúmer 2012050106

Vakta málsnúmer

Samfélags- og mannréttindaráð - 107. fundur - 16.05.2012

Erindi dags. 13. maí 2012 frá Tryggva Marinóssyni f.h. Hamra, útilífs- og umhverfismiðstöðvar skáta þar sem sótt er um styrk að upphæð kr. 1.000.000 vegna útilífsskóla sumarið 2012.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 500.000 vegna útilífsskóla sumarið 2012.