TV einingar - úthlutun vorið 2012

Málsnúmer 2012040159

Vakta málsnúmer

Kjarasamninganefnd - 1. fundur - 29.06.2012

Kynnt niðurstaða matshóps um úthlutun tímabundinna viðbótarlauna (TV eininga) vegna verkefna og hæfni vorið 2012. Á fund nefndarinnar mættu fulltrúar í matshópnum Katrín Björg Ríkharðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar, Hólmkell Hreinsson Amtsbókavörður og Ögmundur Knútsson Háskólanum á Akureyri.

Kjarasamninganefnd samþykkir niðurstöðu matshóps um úthlutun TV eininga vegna verkefna og hæfni til 12 umsækjanda með þeim breytingum sem lagðar voru til á fundinum á fjölda mánaða, til að úthlutun rúmist innan fjárheimildar ársins 2012.