AK-Extreme 2012 - styrkumsókn

Málsnúmer 2012040141

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 122. fundur - 02.05.2012

Erindi ódags. frá Sigurði Árna Jósefssyni f.h. Brettafélags Íslands þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300.000 vegna snjóflutninga að stökkpallinum sem notaður var á snjóbrettamótinu sem haldið var dagana 12.- 15. apríl sl.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að styrkja viðburðinn um kr. 200.000 og felur jafnframt framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að ræða við skipuleggjendur hátíðarinnar um samstarf um þróun hennar og eflingu til framtíðar.