Oddeyrartangi lnr. 149144 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012040138

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 395. fundur - 02.05.2012

Erindi móttekið 25. apríl 2012 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Skjaldborgar kröfuhafafélags 5 ehf., kt. 610510-2560, óskar eftir leyfi til að gera breytingar á rými milli eininga nr. 12 og nr. 15 og hefja þar starfsemi netaverkstæðis. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hauk Haraldsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 404. fundur - 02.07.2012

Erindi móttekið 25. apríl 2012 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Skjaldborgar kröfuhafafélags 5 ehf., kt. 610510-2560, óskar eftir leyfi til að gera breytingar á rými milli módúllína 12 og 15 og hefja þar starfsemi netaverkstæðis. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hauk Haraldsson. Innkomnar nýjar teikningar og gátlisti 22. júní 2012.
Sótt er um undanþágu frá gildandi byggingarreglugerð:
1. gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, lið c.
Hönnunarstjóri er Anton Örn Brynjarsson. Innkomin umsögn frá vinnueftirliti 26. júní 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Þar sem hönnun hússins var hafin fyrir gildistöku nýrrar byggingarreglugerðar og vegna tafa á útgáfu leiðbeiningarblaða, samþykkir skipulagsstjóri umbeðna undanþágu.