Smábátahöfnin í Sandgerðisbót - aðstaða og gjöld

Málsnúmer 2012030141

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3313. fundur - 22.03.2012

Erindi dags. 1. mars 2012 frá 72 eigendum skemmtibáta í Sandgerðisbót þar sem óskað er eftir því að bæjarráð feli fulltrúum sínum í Hafnasamlagi Norðurlands og þeim sem málið varða að vinna að leiðréttingu og úrbótum vegna gjalda og aðstöðu í smábátahöfninni í Sandgerðisbót.

Bæjarráð vísar erindinu til stjórnar Hafnasamlags Norðurlands.