Viðurkenningar Húsverndarsjóðs og viðurkenningar fyrir byggingarlist

Málsnúmer 2012030139

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 119. fundur - 30.03.2012

Farið yfir hugmyndir um viðurkenningar Húsverndarsjóðs fyrir viðhald á eldri húsum og fyrir byggingarlist vegna Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta, þann 19. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.

Stjórn Akureyrarstofu - 120. fundur - 12.04.2012

Tekin ákvörðun um veitingu viðurkenninga fyrir viðhald og endurbyggingu eldri húsa og viðurkenningu fyrir góða byggingarlist.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita húseigendum eftirtalinna húsa viðurkenningar fyrir húsvernd:

Hamborg, Hafnarstræti 94

Hafnarstræti 86a og

Lækjargötu 6.

Jafnframt samþykkir stjórnin að veita hönnunarstofunni Gláma-Kím ehf byggingarlistaverðlaun Akureyrar fyrir nýbyggingu Háskólans á Akureyri.