Ásatún 12-18, 20-26 og 28-32 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi.

Málsnúmer 2012020230

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 134. fundur - 14.03.2012

Erindi dagsett 24. febrúar 2012 þar sem Sigurður Björgvin Björnsson f.h. BB Bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um breytingu á deiliskipulagi á lóðum nr. 12-18, 20-26 og 28-32 við Ásatún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.

Skipulagsnefnd telur ekki rétt að breyta hæð fjölbýlishúsa við Ásatún en fjölbýlishúsaröðin sem er þrjár hæðir og er að hluta til komin, er hugsuð sem rammi utan um byggðina frá Miðhúsabraut. Erindinu er hafnað.