Daggarlundur 14 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012020077

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 385. fundur - 15.02.2012

Erindi dagsett 9. febrúar 2012 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Kristins Smára Sigurjónssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 14 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 386. fundur - 22.02.2012

Erindi dagsett 9. febrúar 2012 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Kristins Smára Sigurjónssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 14 við Daggarlund. Einnig er sótt um undanþágu frá nýrri byggingareglugerð, nánari skýringar í meðfylgjandi bréfi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 21. febrúar 2012.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 387. fundur - 29.02.2012

Erindi dagsett 9. febrúar 2012 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Kristins Smára Sigurjónssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 14 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 27. febrúar 2012. Ennfremur er sótt um undanþágu skv. nýrri byggingarreglugerð 112/2012 grein 17.1.2, 1 tekur til eftirfarandi:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, lið h.
2. Gr. 6.4.3 Dyr innanhúss, svala og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2 Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3 Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi ? ný mannvirki og viðbyggingar.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 407. fundur - 26.07.2012

Erindi dagsett 24. júlí 2012 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Kristins Smára Sigurjónssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 409. fundur - 15.08.2012

Erindi dagsett 10. ágúst 2012 þar sem Kristinn Smári Sigurjónsson óskar eftir 3ja mánaða framlengingu á framkvæmdafresti við nýbyggingu á lóð nr. 14 við Daggarlund.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 416. fundur - 10.10.2012

Erindi dagsett 8. október 2012 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Kristins Sigurjónssonar sækir um breytingu á hæðarkóta og garðveggjum. Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 417. fundur - 17.10.2012

Erindi dagsett 3. október 2012 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Kristins Smára Sigurjónssonar sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum, hækkun á hæðarkóta og stækkun á verönd á Daggarlundi 14. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.