Gjaldskrá almenningsbókasafna - breytingar á lögum um almenningsbókasöfn

Málsnúmer 2012020060

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 114. fundur - 09.02.2012

Á síðasta ári breytti Alþingi lögum um almenningsbókasöfn og lutu breytingarnar m.a. að því að ráðherra mennta- og menningarmála gefi út gjaldskrá um dagsektir og bætur fyrir afnot safnaefnis fram yfir skilafrest og að samanlagðar dagsektir fyrir afnot safnaefnis fram yfir skilafrest á hvern lánþega og bætur vegna skemmds eða glataðs safnakosts skuli ákveðnar í reglugerð. Ekki var leitað álits sveitarfélaganna og höfðu sveitarfélögin enga aðkomu að ákvörðuninni. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 er stjórnvöldum gert að taka ávallt mið af sjálfstjórn sveitarfélaga og sérstaklega getið um það að sveitarfélög hafa sjálfstæða tekjustofna og sjálfsforræði á gjaldskrám sem þeim er heimilt að setja.
Þakið var ákveðið kr. 4.000 og er óháð því hversu mikil vanskil fólks eru á bókum og öðrum safnkosti. Þessi regla um hámarkssektir hefur komið mjög niður á tekjuöflun Amtsbókasafnsins á Akureyri.

Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir óánægju með að sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga hafi ekki verið virtur þegar breytingar á lögum um almenningsbókasöfn nr. 36/1997 voru samþykktar á Alþingi þann 7. júní 2011.

Við framlagningu frumvarpsins á Alþingi var ekki gert ráð fyrir að lögin kvæðu á um hámark sekta og bóta en svo virðist sem ákveðins misskilnings hafi gætt í meðförum Alþingis um að um innheimtu sekta og bóta færi samkvæmt sömu viðmiðum og um þjónustugjöld. Stjórn Akureyrarstofu telur það miður að fullrúum sveitarfélaganna hafi ekki verið gefinn kostur á að koma fyrir Alþingi til að ræða breytingarnar á frumvarpinu. Engar skýringar eru fyrirliggjandi um hvernig hámarksfjárhæðin var ákveðin.

Það er álit stjórnar Akureyrarstofu að það orki tvímælis að ráðherra sé ætlað að fjalla um sektir og bætur sveitarfélaga, eins og hér um ræðir, í gjaldskrá og reglugerð þar sem það samræmist ekki sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga að ríkisvaldið grípi með þeim hætti inn í fjárhagsáætlanir sveitarfélaga og stofnana þeirra.

Stjórn Akureyrarstofu hvetur Alþingi til að virða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og taka umrætt lagaákvæði til endurskoðunar.