Naustahverfi 2. áfangi - breyting á deiliskipulagi Sómatún 33-35

Málsnúmer 2012020014

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 132. fundur - 15.02.2012

Erindi dagsett 1. febrúar 2012 frá Sverri Gestssyni og Hrefnu Óladóttur. Þau óska eftir heimild til að gera tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 33-35 við Sómatún þannig að heimilt verði að byggja eins til tveggja hæða einbýlishús á lóðinni í stað tveggja hæða parhúss.

Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.