Fyrirspurn um útleigu á Gamla spítala - Þula ehf

Málsnúmer 2011110173

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 110. fundur - 01.12.2011

Erindi dags. 29. nóvember 2011 frá Magnúsi Kristjánssyni, f.h. Þulu ehf, þar sem hann spyrst fyrir um möguleika á að taka á leigu neðri hæð Gamla spítala eða Gudmands minde.

Stjórn Akureyrarstofu tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að kanna möguleika á að fyrirtækið fái inni í húsnæðinu.