Gjaldskrá SVA

Málsnúmer 2011110069

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 243. fundur - 25.11.2011

Bæjarráð vísaði á fundi sínum 17. nóvember 2011 2. lið b) úr fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 10. nóvember 2011 til framkvæmdadeildar:
Gjaldskrá SVA.
Bjarni Sigurðsson mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa. Hann leggur til gjaldtöku í strætó á sumrin. Telur óeðlilegt að ferðamenn ferðist frítt á kostnað bæjarbúa.

Framkvæmdaráð hefur ekki hug á að taka upp gjald í Strætisvagna Akureyrar.