Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri - tilnefning fulltrúa 2011

Málsnúmer 2011110034

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3297. fundur - 17.11.2011

Erindi dags. 4. nóvember 2011 frá Ásdísi Evu Hannesdóttur, framkvæmdastjóra Norræna félagsins, þar sem óskað er eftir tilnefningu Akureyrarkaupstaðar í stjórn Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri. Tilnefning Akureyrarkaupstaðar óskast send Norræna félaginu fyrir 22. nóvember 2011.

Bæjarráð tilnefnir Hólmkel Hreinsson sem aðalmann og Maríu Helenu Tryggvadóttur sem varamann í stjórn Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri.