Samningar við Akureyrarbæ - fyrirspurn í bæjarráði

Málsnúmer 2011110025

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3295. fundur - 10.11.2011

Lagt fram svar við bókun Guðmundar Baldvins Guðmundssonar B-lista undir öðrum málum í bæjarráði 3. nóvember sl., bókunin var eftirfarandi:
Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista óskar eftir að lagður verði fram listi yfir samninga sem eru í gangi milli Akureyrarbæjar og félaga/samtaka. Jafnframt óskar hann eftir að lögð verði fram greinargerð um hvernig staðið hefur verið við ákvæði samninganna af hálfu samningsaðila.
Karl Guðmundsson innkaupastjóri sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar Karli fyrir upplýsingarnar.