Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2011/2012

Málsnúmer 2011100112

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3294. fundur - 03.11.2011

Lagt fram bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu dags. 26. október 2011 þar sem fram kemur auglýsing til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Umsóknarfrestur er til 9. nóvember 2011.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsókn vegna Hríseyjar og Grímseyjar.

Bæjarráð - 3303. fundur - 12.01.2012

Lagt fram til kynningar bréf dags. 21. desember 2011 frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012, 102 þorskígildistonn vegna Hríseyjar og 15 þorskígildistonn vegna Grímseyjar.
Í bréfinu er einnig vakin athygli á því að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 20. janúar 2012.

Bæjarráð tekur undir bókun hverfisráðs Grímseyjar frá fundi 10. janúar 2012 og lýsir vonbrigðum með hversu lítill byggðakvóti kemur í hlut Grímseyinga.