Óseyri sunnan Krossanesbrautar - deiliskipulag

Málsnúmer 2011100088

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 124. fundur - 26.10.2011

Skipulagsstjóri lagði fram, í samráði við formann skipulagsnefndar, tillögu að deilskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar. Um er að ræða deiliskipulag af þegar byggðu hverfi.
Meðfylgjandi er deiliskipulagsuppdráttur dagsettur 21. október 2011 og greinargerð dagsett 21. október 2011 unnin af X2 hönnun-skipulagi.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn - 3311. fundur - 01.11.2011

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 26. október 2011:
Skipulagsstjóri lagði fram, í samráði við formann skipulagsnefndar, tillögu að deiliskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar. Um er að ræða deiliskipulag af þegar byggðu hverfi.
Meðfylgjandi er deiliskipulagsuppdráttur dags. 21. október 2011 og greinargerð dags. 21. október 2011 unnin af X2 hönnun-skipulagi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

Skipulagsnefnd - 130. fundur - 11.01.2012

Í upphafi fundar óskaði formaður nefndarmönnum og starfsmönnum Akureyrarbæjar gleðilegs árs og bauð nýjan nefndarmann, Sóleyju Björk Stefánsdóttur V-lista, velkomna til starfa.

Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að deiliskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar. Um er að ræða deiliskipulag af þegar byggðu hverfi.
Tillagan var auglýst þann 9. nóvember og var athugasemdafrestur til 22. desember 2011. Skipulagsgögn voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar og í þjónustuanddyri Ráðhúss.
Ein athugasemd barst frá Gísla Magnússyni dagsett 10. nóvember 2011 þar sem hann óskar eftir að gróðri verði plantað í jaðar deiliskipulagssvæðisins.
Aðrar athugasemdir fjölluðu um óskyld mál sem snerta ekki auglýsta tillögu og gefa því ekki tilefni til svars.

Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að setja sérstaka kvöð um gróður á svæðinu heldur verður lóðarhöfum í sjálfsvald sett gróðursetning á lóðunum.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn - 3315. fundur - 17.01.2012

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 11. janúar 2012:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að deiliskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar. Um er að ræða deiliskipulag af þegar byggðu hverfi.
Tillagan var auglýst þann 9. nóvember og var athugasemdafrestur til 22. desember 2011. Skipulagsgögn voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar og í þjónustuanddyri Ráðhúss.
Ein athugasemd barst frá Gísla Magnússyni dags. 10. nóvember 2011 þar sem hann óskar eftir að gróðri verði plantað í jaðar deiliskipulagssvæðisins.