Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra 2012

Málsnúmer 2011100042

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3292. fundur - 20.10.2011

Lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra dags. 11. október 2011 ásamt fundargerð 138. fundar heilbrigðisnefndar, skýrslu aðalfundar Eyþings 2011, fjárhagsáætlun ársins 2012 og áætlaðri kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaga 2012.

Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlunina fyrir sitt leyti.

Bæjarráð óskar eftir að á næsta ári liggi fjárhagsáætlun HNE fyrir til kynningar í bæjarráði áður en hún er lögð fyrir aðalfund Eyþings.