Sómatún 37-45 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2011100024

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 124. fundur - 26.10.2011

Erindi dagsett 6. október 2011 þar sem Ásgrímur Magnússon f.h. Trésmiðju Ásgríms Magnússonar ehf., kt. 410604-3880, sækir um lóð nr. 37-45 við Sómatún. Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Íslandsbanka hf.

Þar sem tveir umsækjendur sækja um lóðina var dregið um hana og varð umsækjandi hlutskarpari.

Skipulagsnefnd samþykkir því erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.