Dalsbraut - deiliskipulag - fyrirspurnir í bæjarráði

Málsnúmer 2011100012

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3291. fundur - 06.10.2011

Ólafur Jónsson D-lista lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
1. Hvenær hefst vinna við breytingar á deiliskipulagi Lundarskóla og íþróttasvæðis KA vegna lagningu Dalsbrautar og hvenær er áætlað að breytt deiliskipulag verði auglýst?
2. Verður myndaður sameiginlegur samráðshópur Lundarskóla og KA í þessari deiliskipulagsvinnu?
3. Er búið að taka afstöðu til staðsetningar innkeyrslu að Lundarskóla frá Dalsbraut?
4. Verður gert ráð fyrir löglegum gervigrasvelli sunnan við íþróttahús KA í breyttu deiliskipulagi?

Meirihluti bæjarráðs vísar fyrirspurnunum til skipulagsnefndar.

Ólafur Jónsson D-lista og Hermann Jón Tómasson S-lista sátu hjá við afgreiðslu.

Ólafur Jónsson D-lista óskar bókað: Ég undrast og hef um leið áhyggjur af því að ekki skuli vera hafin vinna við að breyta gildandi deiliskipulagi Lundarskóla og íþróttasvæðis KA vegna lagningar Dalsbrautar. Boðaðar afleiddar framkvæmdir vegna Dalsbrautar sem snúa að nýrri innkeyrslu og breytingum á skólalóð auk byggingar löglegs gervigrasvallar við Íþróttahús KA eru umfangsmiklar. Eðlilegt og nauðsynlegt er að öll skipulagsvinna vegna þessa sé unnin samtímis skipulagsferli götunnar.

Skipulagsnefnd - 123. fundur - 12.10.2011

Ólafur Jónsson D-lista lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
1. Hvenær hefst vinna við breytingar á deiliskipulagi Lundarskóla og íþróttasvæðis KA vegna lagningar Dalsbrautar og hvenær er áætlað að breytt deiliskipulag verði auglýst?
2. Verður myndaður sameiginlegur samráðshópur Lundarskóla og KA í þessari deiliskipulagsvinnu?
3. Er búið að taka afstöðu til staðsetningar innkeyrslu að Lundarskóla frá Dalsbraut?
4. Verður gert ráð fyrir löglegum keppnisgervigrasvelli sunnan við íþróttahús KA í breyttu deiliskipulagi?

Svar við fyrirspurn:

1. Vinnuhópur Dalsbrautarverkefnisins hefur átt í viðræðum við forsvarsmenn Lundarskóla og KA um breytingar á deiliskipulagi svæðisins þar sem markmiðið var að finna lausn á ýmsum fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulaginu s.s. nýrri aðkomu að Lundarskóla og möguleikum á stækkun svæðis KA. Í framhaldi af þeim viðræðum er gert ráð fyrir að farið verði í vinnu við breytingu á deiliskipulagi svæðisins.

2. Skipulagsnefnd gerir ráð fyrir að vinnuhópur Dalsbrautarverkefnisins haldi áfram að ræða við forsvarsmenn Lundarskóla og KA um breytingar á deiliskipulagi svæðisins þegar sú vinna fer í gang.

3. Samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Dalsbrautar er gert ráð fyrir heimild fyrir breyttri aðkomu að Lundarskóla. Þar er einnig sýnd núverandi aðkoma að Lundarskóla. Hluti verkefnis vinnuhópsins er að komast að niðurstöðu um lausn á aðkomu að Lundarskóla.

4. Þar sem vinna við breytingu á deiliskipulaginu hefur ekki farið af stað er ekki hægt að svara fyrirspurninni á þessi stigi. Sjá einnig svar við lið nr. 1 og 2.

Auður Jónasdóttir V-lista tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.