Dalsbraut - athugasemdir

Málsnúmer 2011090141

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 124. fundur - 26.10.2011

Gestur Geirsson og Elvar Smári Sævarsson mættu í viðtalstíma bæjarfulltrúa f.h. hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis þar sem gerðar eru athugasemdir í nokkrum liðum vegna fyrirhugaðrar lagningu Dalsbrautar.

Deiliskipulag Dalsbrautar og nágrennis er í formlegu auglýsingaferli sem lýkur 10. nóvember. Fyrirspurninni með athugasemdunum er vísað til úrvinnslu að athugasemdatíma loknum.