Íþróttafélagið Þór - kalskemmdir

Málsnúmer 2011090050

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 96. fundur - 15.09.2011

Erindi dags. 8. september 2011 frá Sigfúsi Ólafi Helgasyni framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Þórs þar, sem hann óskar eftir fjárframlagi frá Akureyrarbæ vegna mjög slæms ásigkomulags knattspyrnuvalla félagsins af völdum kalskemmda sem orsakaði mikinn kostnað við hirðingu þeirra sumarið 2011.

Íþróttaráð telur að þær veðurfarslegu aðstæður sem voru sl. vetur og vor hafi haft veruleg áhrif á þau íþróttafélög sem sjá um rekstur grassvæða í eigu Akureyrarbæjar. Ráðið telur það ljóst að án þeirra aðgerða sem gripið var til af hálfu félaganna hefði hefðbundin starfsemi þeirra raskast verulega með tilheyrandi óþægindum og tekjutapi.

Íþróttaráð leggur því mikla áherslu á, að vegna þessara óvæntu og óviðráðanlegu aðstæðna sem upp komu, að Akureyrarbær taki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerðanna.

Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að Íþróttafélaginu Þór verði veittur fjárhagslegur stuðningur vegna ofangreinds kostnaðar.

Bæjarráð - 3290. fundur - 29.09.2011

4. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 15. september 2011:
Erindi dags. 8. september 2011 frá Sigfúsi Ólafi Helgasyni framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Þórs þar sem hann óskar eftir fjárframlagi frá Akureyrarbæ vegna mjög slæms ásigkomulags knattspyrnuvalla félagsins af völdum kalskemmda sem orsakaði mikinn kostnað við hirðingu þeirra sumarið 2011.
Íþróttaráð telur að þær veðurfarslegu aðstæður sem voru sl. vetur og vor hafi haft veruleg áhrif á þau íþróttafélög sem sjá um rekstur grassvæða í eigu Akureyrarbæjar. Ráðið telur það ljóst að án þeirra aðgerða sem gripið var til af hálfu félaganna hefði hefðbundin starfsemi þeirra raskast verulega með tilheyrandi óþægindum og tekjutapi.
Íþróttaráð leggur því mikla áherslu á, að vegna þessara óvæntu og óviðráðanlegu aðstæðna sem upp komu, að Akureyrarbær taki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerðanna.
Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að Íþróttafélaginu Þór verði veittur fjárhagslegur stuðningur vegna ofangreinds kostnaðar.

Bæjarráð samþykkir að styrkja Íþróttafélagið Þór um kr. 250.000 vegna kalskemmda á knattspyrnuvöllum félagsins og vísar kostnaði til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.