Langholt 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir spennistöð

Málsnúmer 2011090043

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 424. fundur - 06.12.2012

Erindi dagsett 27. nóvember 2012 þar sem Gunnar Gunnarsson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á spennistöð að Langholti 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 474. fundur - 18.12.2013

Erindi dagsett 26. nóvember 2013 frá Þresti Sigurðssyni þar sem hann f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, leggur inn reyndarteikningar af spennistöð að Langholti 2 og jafnframt er óskað eftir hækkun á gólfkóta hússins um 30 sm. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson innkomnar 25. nóvember 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.