Tjaldsvæðisreitur við Þórunnarstræti - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2011080088

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 121. fundur - 14.09.2011

Erindi dagsett 25. ágúst 2011 frá Fanneyju Hauksdóttur þar sem hún f.h. Þingvangs ehf., kt. 671106-0750, óskar eftir breytingu á deiliskipulagi reitsins miðað við meðfylgjandi tillögu að stækkun hússins á lóðinni Þingvallastræti 23.

Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd - 138. fundur - 23.05.2012

Erindi dagsett 25. ágúst 2011 frá Fanneyju Hauksdóttur þar sem hún f.h. Þingvangs ehf., kt. 671106-0750, óskar eftir breytingu á deiliskipulagi reitsins miðað við meðfylgjandi tillögu að stækkun hússins á lóðinni við Þingvallastræti 23.

Skipulagsnefnd samþykkir að breyta legu göngustígs sem liggur yfir lóð Þórunnarstrætis 99 og færa hann inn á lóð tjaldsvæðis.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn - 3322. fundur - 05.06.2012

6. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 23. maí 2012:
Erindi dags. 25. ágúst 2011 frá Fanneyju Hauksdóttur þar sem hún f.h. Þingvangs ehf, kt. 671106-0750, óskar eftir breytingu á deiliskipulagi reitsins miðað við meðfylgjandi tillögu að stækkun hússins á lóðinni við Þingvallastræti 23.
Skipulagsnefnd samþykkir að breyta legu göngustígs sem liggur yfir lóð Þórunnarstrætis 99 og færa hann inn á lóð tjaldsvæðis.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

Skipulagsnefnd - 142. fundur - 22.08.2012

Deiliskipulagsbreyting á tjaldsvæðisreit við Þórunnarstræti var auglýst frá 13. júní til 26. júlí 2012 í Dagskránni og í Lögbirtingarblaðinu. Gögnin voru aðgengileg í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og á netinu undir www.akureyri.is/skipulagsdeild.
Engin athugasemd barst.

Skipulagsnefnd samþykkir að kvöð um göngustíg yfir lóð Þórunnarstrætis 99 verði óbreytt og leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan, þannig breytt verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn - 3325. fundur - 04.09.2012

7. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 22. ágúst 2012: