Fjárhagsáætlun 2012 - íþróttaráð

Málsnúmer 2011080055

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 94. fundur - 18.08.2011

Lagt fram fjárhagsáætlunarferli fyrir fjárhagsáætlun 2012.

Íþróttaráð - 96. fundur - 15.09.2011

Lagðar fram forsendur fyrir fjárhagsáætlunarvinnu og unnið að gjaldskrárbreytingum fyrir starfsárið 2012.

Íþróttaráð - 97. fundur - 29.09.2011

Unnið að gjaldskrárbreytingum og fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2012.

Íþróttaráð - 98. fundur - 07.10.2011

Unnið að gjaldskrárbreytingum og fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2012.

Íþróttaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að gjaldskrá íþróttadeildar fyrir starfsárið 2012.

Íþróttaráð - 99. fundur - 13.10.2011

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun íþróttaráðs fyrir starfsárið 2012. Í áætluninni er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði kr. 1.255.199.279 sem er kr. 61.206.279 hærra en rammi íþróttaráðs gerir ráð fyrir. Gert er ráð fyrir því í áætluninni að kr. 22.966.000 sem eru umfram ramma vegna húsaleigu, kr. 7.582.162 sem eru umfram ramma vegna orkukostnaðar, kr. 25.000.000 vegna uppbyggingarsamninga við Golfklúbb Akureyrar og kr. 9.000.000 vegna uppbyggingarsamnings við Íþróttafélagið Þór, verði bætt við rammann. Þá er gert ráð fyrir því í áætluninni að tekjur dragist saman í Hlíðarfjalli um kr. 25.249.435 frá áætlun ársins 2011 og samtals í rekstri íþróttadeildar frá áætlun 2011 um kr. 18.740.148. Í áætluninni er gert ráð fyrir 5-7% leiðréttingu á gjaldskrám mannvirkja íþróttadeildar.

Íþróttaráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun 2012 og vísar þeim til bæjarráðs.

Bæjarráð - 3293. fundur - 27.10.2011

1. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 7. október 2011:
Unnið að gjaldskrárbreytingum og fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2012.
Íþróttaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að gjaldskrá íþróttadeildar fyrir starfsárið 2012.
Kristinn H. Svanbergsson framkvæmdastjóri íþróttadeildar sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir Hlíðarfjall en frestar afgreiðslu á öðrum gjaldskrám íþróttaráðs.

Íþróttaráð - 126. fundur - 21.02.2013

Fjárhagsyfirlit fyrir árið 2012 lagt fram til kynningar.

Íþróttaráð - 127. fundur - 07.03.2013

Yfirlit yfir styrki íþróttaráðs 2012 lagt fram til kynningar.