TV einingar, ljósmæður á HAK

Málsnúmer 2011070054

Vakta málsnúmer

Kjarasamninganefnd - 3. fundur - 17.07.2011

Lögð fram tillaga að úthlutun tímabundinna viðbótarlauna (TV-eininga) vegna markaðs- og samkeppinsaðstæðna til starfa ljósmæðra á Heilsugæslustöðinni á Akureyri. Í samræmi við reglur Akureyrarbæjar um úthlutun TV-eininga vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna hefur verið leitað álits framkvæmdastjóra samfélags- og mannréttindadeildar um tillöguna.

Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu um breytingar á úthlutun tímabundinna viðbótarlauna með gildistíma frá 1. júní 2011.