Icelandair Hótel Akureyri - atvinnu- og ferðamál

Málsnúmer 2011070020

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 102. fundur - 30.06.2011

Icelandair Hótel Akureyri er nýtt hótel sem opnaði á Akureyri þann 10. júní 2011. Hótelið mun bjóða upp á 101 herbergi alls og hafa um 25 manns hafið þar störf.

Stjórn Akureyrarstofu óskar Icelandair Hotels til hamingju með nýja hótelið og fagnar fjölgun stöðugilda á Akureyri.