Hlíðarfjallsvegur - Glerá l og ll - umsókn um endurskoðun á deiliskipulagi

Málsnúmer 2011060020

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 116. fundur - 15.06.2011

Erindi dagsett 3. júní þar sem Einar Arnarson eigandi Glerár 1 og eigendur Glerár 2, Hrafnkell Sigtryggsson, Guðný Steina Pétursdóttir, Rúnar Ómarsson og Aðalheiður Birgisdóttir óska eftir að svæðið sem húsin standa á, aðliggjandi lóðir og aðkoma verði deiliskipulagðar sem fyrst. Nánari skýringar í meðfylgjandi bréfi.

Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu og felur skipulagsstjóra að afla nánari upplýsinga um erindið hjá umsækjendum.