Félag hundaeigenda á Akureyri - þjónusta við hundaeigendur

Málsnúmer 2011050043

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 235. fundur - 16.06.2011

Lagt fram erindi dags. 9. maí 2011 frá Gunnari Hansen formanni Félags hundaeigenda á Akureyri þar sem óskað er eftir svörum í þremur liðum um þjónustu Akureyrarkaupstaðar við hundaeigendur á Akureyri.

Framkvæmdaráð fagnar stofnun Félags hundaeigenda á Akureyri og felur Jóni Birgi Gunnlaugssyni forstöðumanni umhverfismála jafnframt að svara erindinu og að leita eftir samstarfi við félagið í framtíðinni.