Myndlistarfélagið - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2011

Málsnúmer 2011030063

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 93. fundur - 24.03.2011

Umsókn dags. 3. mars 2011 frá Brynhildi Kristinsdóttur f.h. Myndlistarfélagsins þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr. 300.000 vegna sýningar á Listasumri 2011.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 50.000 til verkefnisins.