Menningarfélagið Hof - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2011

Málsnúmer 2011030060

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 93. fundur - 24.03.2011

Umsókn dags. 4. mars 2011 frá Láru Sóleyju Jóhannsdóttur f.h. Menningarfélagsins Hofs þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr. 150.000 til fjármögnunar Tónlistarvinnuskóla sem starfræktur verður sumarið 2011 í Menningarhúsinu Hofi.

Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu en í forsendum verkefnisins er gert ráð fyrir þátttöku Vinnuskólans og þar með stuðningi Akureyrarbæjar.