Leikhópurinn Opið út - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2011

Málsnúmer 2011020135

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 93. fundur - 24.03.2011

Umsókn dags. 3. janúar 2011 frá Maríu Pálsdóttur f.h. leikhópsins Opið út þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr. 210.000 til að standa straum af flutnings- og ferðakostnaði ásamt hluta af launum tæknimanna við leiksýninguna Bláa gullið sem sett var upp í Menningarhúsinu Hofi.

Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.