Þingvallastræti 23 -hótel

Málsnúmer 2010100146

Vakta málsnúmer

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 3. fundur - 28.10.2010

Lögð var fram til umsagnar tillaga dags. 27.10.2010 að breytingu á Þingvallastræti 23. Gert er ráð fyrir að byggja við húsið og breyta því í hótel. Tillagan er unnin af Fanneyju Hauksdóttur.
Fanney mætti á fundinn og kynnti tillöguna.

Nefndin þakkar Fanneyju góða kynningu og fagnar þeim aðgerðum sem á að gera gagnvart aðgengi fatlaðra að og í byggingunni og samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti. Við framkvæmd breytinganna verði vel hugað að öðrum þeim atriðum varðandi aðgengismál fatlaðra sem ekki koma fram á aðalteikningum og að gerðar verði deilimyndir af ýmsum útfærslum sem varða aðgengi fatlaðra, sjóndapra og heyrnarskertra.