Skíðafélag Akureyrar - styrkbeiðni - skábraut við gönguhús

Málsnúmer 2010100102

Vakta málsnúmer

Íþróttaráð - 80. fundur - 19.10.2010

Erindi dags. 18. október 2010 frá Kára Jóhannessyni f.h. Skíðagöngunefndar Skíðafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 250.000 til að ljúka uppsetningu á skábraut við gönguhúsið í Hlíðarfjalli.

Íþróttaráð samþykkir erindið og telur mikilvægt að aðgengi fyrir fatlaða verði bætt og það unnið í samvinnu við samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra.