Naustahverfi 1. áfangi - reitir 1 og 2 - breyting á deiliskipulagi við Fossatún 6-8

Málsnúmer 2010090003

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3291. fundur - 05.10.2010

7. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 29. september 2010:
Erindi dags. 29. júní 2010 þar sem Guðrún Björk Eyjólfsdóttir og Jón Birkir Lúðvíksson óska eftir stækkun á byggingarreit til norðurs. Erindið var sent í grenndarkynningu þann 1. september 2010. Henni lauk 17. september 2010 með samþykki allra er grenndarkynninguna fengu.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.