Fosshlíð, Hlíðarbraut, Sunnuhlíð og Skarðshlíð - deiliskipulag

Málsnúmer 2010070052

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3291. fundur - 05.10.2010

8. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 29. september 2010:
Tillaga að deiliskipulagi reitsins var auglýst í Lögbirtingarblaði og N4 Dagskránni þann 5. ágúst 2010. Athugasemdafrestur rann út 16. september sl. og barst engin athugasemd.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.