Hesthúsahverfi - lagning fráveitu og hitaveitu

Málsnúmer 2010030073

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 243. fundur - 25.11.2011

Bæjarráð vísaði á fundi sínum 17. nóvember 2011 4. lið í fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 10. nóvember 2011 til framkvæmdadeildar:
Formaður Hestamannafélagsins Léttis, Andrea Margrét Þorvaldsdóttir, hringdi í viðtalstíma bæjarfulltrúa.
Andrea vill vita hvað Akureyrarbær ætlar sér að gera varðandi salernisaðstöðu í Breiðholti fyrir veturinn. Í Breiðholti séu um 103 hesthús og milli 400-500 manns sem sækja svæðið daglega. Ekki er hægt að koma fyrir rotþró allsstaðar. Félagið hafi síðasta vetur verið með kamra en hafi ekki tök á því nú.

Í vetur verður unnið að hönnun fráveitukerfis í hesthúsahverfinu í Breiðholti og ákvarðarnir verða teknar í framhaldinu af því.