Reglur um dagþjónustu og aðstoð vegna atvinnu fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 2005110070

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1116. fundur - 12.01.2011

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um dagþjónustu og aðstoð vegna atvinnu fyrir fatlað fólk vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 3296. fundur - 18.01.2011

7. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. janúar 2011:
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti tillögu dags. 10. janúar 2011 um breytingar á reglum um dagþjónustu og aðstoð vegna atvinnu fyrir fatlað fólk vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar með 11 samhljóða atkvæðum.